Hvað er Upprunaábyrgð?

Upprunaábyrgðir eru staðfesting á að ákveðið magn rafmagns hafi verið framleitt með 100% endurnýjanlegum orkugjöfum. Hægt er að hugsa afurð endurnýjanlegra orkugjafa sem tvær aðskildar vörur. Annars vegar sú raforka sem framleidd er og hins vegar þær upprunaábyrgðir sem verða til við framleiðsluna.

Upprunaábyrgð er staðfesting á því að rafmagnið sem verið er að nota er framleitt með 100% endurnýjanlegum orkugjöfum.

Sumardíll!

Fáðu leigu fyrstu 3 mánaða frítt ef stöð er tekin á leigu á tímabilinu 1. maí til 31. júlí 2025

Skoða nánar

Áhrif á viðskiptavini


Orkusalan hvetur viðskiptavini sína til þess að taka upplýsta ákvörðun þegar kemur að kaupum á upprunaábyrgðum. Í langflestum tilvikum eru það fyrirtæki sem kaupa upprunaábyrgðir og geta verið ýmsar ástæður fyrir því.

Meðal annars:

  • Vegna aðgreiningar á markaði
  • Hærra verð fyrir útflutningsvörur
  • Skapa jákvæða ímynd
  • Lægri losunarstuðlar í kolefnisbókhaldi

Til samanburðar var losunarstuðull raforku með upprunaábyrgðum 10,3 grCO2/kWst* árið 2021 samanborið við 427 grCO2/kWst frá Orksustofnun án upprunaábyrgðar sama ár.

* Samkvæmt Umhverfisstofnun

Verðskrá

Almenn notkun
10.96
Kr./kWh
Rafhitun
8.63
Kr./kWh

Verð fyrir sölu á raforku miðað við 1. janúar 2024. / Orkuverð án vsk. 8,49 kr/kWst — Greitt með greiðslukorti 0 kr. — Heimsendur greiðsluseðill 343 kr. — Aðrir greiðslumátar 107 kr.

Upprunaábyrgð

Allir viðskiptavinir Orkusölunnar eiga kost á því að kaupa upprunaábyrgðir og verða þær gjaldfærðar í samræmi við notkun mánaðarlega. Verð upprunaábyrgða í dag m. vsk er 0,43 kr/kWst. Upprunaábyrgðir geta tekið verðbreytingum í samræmi við markaðsaðstæður.

Almenn notkun10,96 Kr. / kWhRafhitun8,63 Kr. / kWh

Spurt & svarað