Viðskiptaskilmálar

Orkusöluappið

1. Almennt

a) Skilmálar þessir gilda um hvers konar sölu og þjónustu Orkusölunnar ehf., kt. 560306-1130, Urðarhvarfi 8, 203 Kópavogi, („Orkusalan“) og eftir atvikum samstarfsaðila Orkusölunnar, í gegnum snjallsímaforrit („Appið“), en notandi Appsins samþykkir þá með innskráningu og notkun á Appinu. Notkun Appsins er notanda að kostnaðarlausu.

b) Með því að hlaða Appinu niður í snjalltæki sitt, stofna aðgang og nota þá þjónustu sem Orkusalan býður með Appinu, lýsir notandi því yfir að hann hafi lesið, skilið og samþykkt skilmálana í heild sinni og að hann muni fylgja þeim í hvívetna.

c) Orkusalan gefur út hleðslulykla (RFID) sem notendur geta skráð og tengt við aðgang sinn í Appinu. Hægt er að nota hleðslulyklana til að auðkenna sig og hefja hleðslu á hleðslustöðvum Orkusölunnar.

d) Öll notkun Appsins skal takmarkast við þær aðgerðir sem eðlilegar og löglegar geta talist og þær upplýsingar og þá þjónustu sem er boðið upp á á hverjum tíma hjá Orkusölunni.

e) Um þjónustu Orkusölunnar gilda að öðru leyti persónuverndarstefna, öryggisstefna, almennir viðskiptaskilmálar Orkusölunnar og skilmálar um hleðsluáskrift, sem teljast vera hluti skilmála þessa, og eru aðgengileg inn á vefsíðu Orkusölunnar www.orkusalan.is.

f) Komi upp misræmi á milli skilmála þessara og annarra skilmála Orkusölunnar um efni sem varðar beint notkun og þjónustu Appsins, skulu skilmálar þessir ganga framar.

2. Þjónustan

a) Í Appinu er notanda m.a. gert kleift að nýta hleðsluþjónustu Orkusölunnar í gegnum Appið og aðra virkni sem þar er í boði hverju sinni (saman nefnd „þjónustan“). Í Appinu er m.a. hægt að hlaða á hleðslustöðvum í netkerfi Orkusölunnar og samstarfsaðila félagsins, stjórna heimahleðslustöðvum, fá aðgang að notendaupplýsingum sínum og viðskiptasögu.

b) Þjónustan og öll notkun Appsins er aðeins ætluð fyrir notandann sjálfan.

c) Orkusalan ákveður einhliða þá þjónustu sem er í boði hverju sinni og áskilur sér allan rétt til að gera breytingar eða viðbætur við þjónustuna, þ.á m. kröfur til öryggismála.

3. Stofnun aðgangs, auðkenning og öryggi

a) Notandi skráir sig að jafnaði inn í Appið með rafrænum skilríkjum. Hægt er að fá aðgang að ákveðnum þjónustuþáttum Appsins, svo sem hleðsluþjónustu, með skráningu tölvupóstfangs eða annarri auðkenningaraðferð sem Orkusalan býður upp á hverju sinni. Aðgangur að upplýsingum um viðskiptasamband notanda, þ.m.t. kennitölu, greiðslusögu, samningsupplýsingum og öðrum persónubundnum þjónustuþáttum, er háður frekari og öruggari auðkenningu með rafrænum skilríkjum eða annarri sambærilegri auðkenningu sem Orkusalan samþykkir.

b) Aðgang að hleðsluþjónustu í staðgreiðslu í gegnum Appið geta einstaklingar 17 ára og eldri stofnað, en aðeins einstaklingar 18 ára og eldri geta nýtt aðra þjónustu Appsins.

c) Notandi skilur og samþykkir að hann sé ábyrgur fyrir því að tryggja leynd aðgangs­upplýsinga sinna, sem gera honum kleift að fá aðgang að þjónustu Orkusölunnar í gegnum Appið.

d) Notanda ber að gæta fyllsta öryggis við meðferð persónubundinna öryggisþátta, aðgangsupplýsinga og annarra auðkenna sem tengjast notendaaðgangi hans, þar á meðal símtækja og hleðslulykla (RFID). Notanda er óheimilt að deila slíkum upplýsingum með öðrum og ber honum að grípa til nauðsynlegra varúðar- og öryggisráðstafana til að koma í veg fyrir að óviðkomandi aðilar komist yfir þær eða fái aðgang að þjónustunni.

e) Aðeins er heimilt að setja Appið upp á símtæki sem er í eigu eða í umsjá notanda. Ef notandi lánar, selur, skiptir um eða afhendir öðrum símtækið sem tengt hefur verið við þjónustuna eða hættir af öðrum ástæðum að nota tækið, ber honum áður en það er gert að eyða öllum persónuupplýsingum sínum úr tækinu, þar á meðal Appinu, og tryggja að engar aðgangsupplýsingar eða persónubundnir öryggisþættir verði áfram aðgengilegir í tækinu.

f) Öll notkun, úttektir, pantanir og fjárhagslegar færslur sem skráðar eru eða framkvæmdar í gegnum aðgang notanda teljast gerðar af notandanum sjálfum og eru á hans ábyrgð og kostnað.

g) Hleðslulykill (RFID) sem notandi kann að fá afhentan frá Orkusölunni er eign Orkusölunnar. Meðferð, varsla og notkun lykilsins er alfarið á ábyrgð skráðs notanda.

h) Notandi ber ábyrgð á að halda skráðum upplýsingum sínum í appinu réttum og uppfærðum, þ.m.t. netfangi, símanúmeri og greiðsluupplýsingum, svo Orkusalan geti haft samband við hann og hann geti áfram nýtt sér þjónustuna.

i) Orkusölunni er heimilt, í samræmi við lög, að framkvæma lánshæfis- eða greiðslumat áður en tiltekinn greiðslumáti eða reikningsviðskipti eru samþykkt fyrir notandaaðgang.

4. Hleðsluþjónusta í gegnum Appið

a) Notandi, hvort sem hann er í viðskiptasambandi við Orkusöluna eða staðgreiðsluviðskiptum, getur nýtt hleðsluþjónustu í gegnum Appið, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

b) Vilji notandi tengja einkahleðslustöð (heimahleðslustöð) við Appið ber hann ábyrgð á að skilgreina aðgangsheimildir stöðvarinnar í Appinu (s.s. hvort stöðin sé opin almenningi, læst eða einungis aðgengileg tilteknum Hleðslulyklum (RFID). Orkunotkun á viðkomandi heimastöð er á ábyrgð og kostnað eiganda stöðvarinnar.

c) Með Appinu getur notandi fylgst með og stýrt notkun hleðslu á heimahleðslustöðvum, t.d. fest ákveðnar tímasetningar á hleðslu. Til þess að unnt sé að sjá raungögn, færsluyfirlit og stýra notkun heimahleðslustöðvar í Appi þarf eigandi eða umráðamaður hennar að tryggja að hún séu í stöðugu netsambandi (um WiFi eða farsímakerfi).

d) Til þess að notandi geti nýtt hleðsluþjónustu í gegnum Appið þarf notandi að skrá greiðslukort eða annan viðurkenndan og virkan greiðslumáta í Appinu, eftir að hann stofnar aðgang.

e) Við upphaf hverrar hleðslulotu þar sem greitt er með greiðslukorti áskilur Orkusalan sér rétt til að framkvæma sjálfvirka heimildarbeiðni og taka frá ákveðna lágmarksupphæð á greiðslukorti notanda (að jafnaði 3.000 til 6.000 kr.) til tryggingar á innistæðu. Við lok hleðslu er raunveruleg eyðsla innheimt og eftirstöðvar heimildarinnar felld niður. Orkusalan ber ekki ábyrgð á þeim tíma sem það tekur kortafyrirtæki eða viðskiptabanka notanda að ljúka uppgjöri greiðslu.

f) Komi í ljós að lokinni hleðslulotu að heimildarbeiðni er hafnað stofnast krafa í banka, og ber notanda að gera hana upp innan 30 daga frá hleðslulotu eða við næstu mánaðamót, hvort sem fyrr ber upp. Verði það ekki gert, áskilur Orkusalan sér rétt til að vísa kröfunni til innheimtu í samræmi við almenna viðskiptaskilmála Orkusölunnar.

g) Gildandi verðskrá hverju sinni fyrir hvert hleðslutengi, hvort sem er skv. verðskrá fyrir hleðsluáskrift eða almenningsstöðvar, er sýnileg í appinu og telst notandi hafa kynnt sér og samþykkt verðskrá viðkomandi tengis með því að ræsa hleðslu. Breytingar á verðskrá fyrir stakar hleðslulotur (þ.m.t. verð á hverja kWh stund, tímagjald og önnur breytileg gjöld) geta tekið gildi án sérstakrar tilkynningar til notenda, enda sé gildandi verð ávallt sýnilegt í appinu.

h) Telji notandi gjaldfærslu vegna hleðslulotu ranga, skal hann koma athugasemd á framfæri við Orkusöluna á netfangið orkusalan@orkusalan.is eins fljótt og unnt er eða eigi síðar en innan 60 daga frá því að færslan birtist á aðgangi notanda eða reikningi. Að þeim fresti liðnum kann réttur til leiðréttingar að falla niður, nema á annan veg leiði af ófrávíkjanlegum reglum laga.

i) Notanda ber að sýna fyllstu varkárni, fylgja settum leiðbeiningum á hleðslustöðvum og tryggja að bifreið og tengibúnaður (t.d. hleðslusnúrur) séu löglegir, vottaðir og í fullkomnu lagi. Notandi ber ábyrgð á tjóni sem hlýst af rangri eða óskynsamlegri notkun hans á stöðvunum.

j) Notanda skal rýma hleðslustæðið eins fljótt og unnt er eftir að hleðslu lýkur.

k) Til að tryggja hámarksnýtingu hleðslustöðva og jafnan aðgang rafbílaeigenda, áskilur Orkusalan sér rétt til að innheimta tímagjald og önnur breytileg gjöld skv.verðskrá hverju sinni, ef bifreið stendur áfram tengd við hleðslustöð eftir að hleðslu lýkur.

5. Sjálfvirk auðkenning (AutoCharge / Plug & Charge)

a) Í Appinu er hægt að virkja sjálfvirka auðkenningu (AutoCharge) fyrir bifreiðar sem styðja slíka tækni í gegnum CCS2-tengi og einstaka type2 tengi.

b) Með því að virkja AutoCharge í appinu samþykkir notandi að í hvert sinn sem hin skráða bifreið er tengd við hleðslustöð í kerfi Orkusölunnar auðkenni bifreiðin sig sjálfkrafa og hleðsla hefjist ásamt tilheyrandi greiðslukortafærslu, án þess að frekari staðfestingar eða aðgerða sé þörf í appinu. Samþykki þetta gildir þar til notandi afturkallar það sjálfur með því að slökkva á virkninni í appinu.

c) Verði breyting á eignarhaldi eða umráðarétti bifreiðarinnar (t.d. við sölu eða lok leigutíma), skal notandi afskrá AutoCharge-tenginguna tafarlaust í appinu. Vanræki notandi þessa skyldu, ber hann ábyrgð á hleðslum og úttektum sem nýr eigandi eða umráðamaður bifreiðarinnar framkvæmir á kostnað notandans.

6. Hugverkaréttur Orkusölunnar

a) Appið er eign Orkusölunnar og óheimilt er að breyta því eða afrita.

b)  Allur hugverkaréttur sem tengist þjónustunni er eign Orkusölunnar. Í hugverkarétti felst m.a. hvers kyns höfundarréttur, hönnunarréttur, eignaréttur og sérþekking (know-how), vörumerkja­réttur og einkaleyfaréttur, sem og skyld réttindi, hvaða nafni sem þau nefnast, bein eða óbein.

c)  Notkun Appsins er óheimil ef átt hefur verið við stýrikerfi viðkomandi símtækis eða öryggi þess er ógnað af öðrum ástæðum, svo sem vegna uppsetningar á vafasömu forriti.

e) Sæki notandi appið í gegnum App Store eða Google Play, kann notkun þess jafnframt að lúta skilmálum viðkomandi verslunar.

7. Ábyrgð og skyldur

a)  Mikilvægt er að notandi tryggi örugga notkun Appsins, m.a. með því að gæta þess að öll notkun samrýmist þessum skilmálum.

b) Notandi ber ábyrgð á að hafa yfir að ráða samhæfu tæki, nettengingu og þeim hugbúnaði og kerfisútgáfum sem nauðsynlegar eru til notkunar appsins. Notandi ber ábyrgð á að setja upp uppfærslur og halda stýrikerfi búnaðar síns innan þeirra marka sem appið styður hverju sinni. Setji notandi ekki upp uppfærslur kann virkni appsins að skerðast eða falla niður, án þess að Orkusalan beri ábyrgð þar á.

c) Tiltekin virkni appsins kann að krefjast þess að notandi veiti tækinu heimildir, svo sem til notkunar myndavélar, Bluetooth, staðsetningar eða tilkynninga. Notanda er frjálst að stjórna slíkum heimildum í tæki sínu, en takmörkun þeirra getur haft áhrif á virkni appsins, þ.m.t. hleðsluþjónustu.

d) Notandi ber ábyrgð á aðgerðum sem eru framkvæmdar í Appinu eftir að Appið hefur verið virkjað, hvort sem það er með innskráningu með rafrænum skilríkjum, PIN, fingrafara- eða augnskanna.

e) Notandi ber að gera nauðsynlegar varúðarráðstafanir með viðeigandi persónubundnum öryggisþáttum, s.s. með því að virkja læsingu á snjalltæki.

f) Orkusalan áskilur sér rétt til að breyta öryggiskröfum sínum án fyrirvara.

g) Ef símtæki notanda, hleðslulyklar (RFID) eða önnur auðkenni sem tengjast notandaaðgangi hans glatast, eða ef notandi verður var við eða hefur ástæðu til að ætla að óviðkomandi aðili hafi komist yfir aðgangsupplýsingar hans eða persónubundna öryggisþætti, ber honum að tilkynna það Orkusölunni tafarlaust á netfangið orkusalan@orkusalan.is og breyta viðkomandi auðkenni eða loka fyrir það í gegnum Appið, eftir því sem við á.

h) Notandi ber alla ábyrgð á allri notkun, úttektum og tjóni sem hlýst af notkun hinna glötuðu eða misnotuðu auðkenna þar til tilkynning hefur sannarlega borist Orkusölunni eða lokað hefur verið fyrir viðkomandi auðkenni í kerfum Orkusölunnar.

i) Vanræki notandi skyldur sínar samkvæmt öryggisákvæðum skilmálanna og tryggi þar með ekki öryggi persónubundinna öryggisþátta sinna telst það stórkostlegt gáleysi af hans hálfu.

8. Takmörkun á ábyrgð Orkusölunnar

a) Orkusalan leitast við að tryggja að Appið virki eðlilega og að upplýsingar í því séu réttar, en ábyrgist það ekki samfellda virkni þess eða villuleysi. Notandi ber ábyrgð á að setja upp uppfærslur á Appinu og halda stýrikerfi sínu innan þeirra marka sem Appið styður. Setji notandi ekki upp uppfærslur kann virkni Appsins að skerðast, án þess að Orkusalan beri ábyrgð þar á.

b) Að því marki sem lög leyfa, ber Orkusalan ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til a) vanþekkingar, misskilnings eða misnotkunar notanda (eða aðila á hans vegum) á Appinu; b) atvika sem rekja má til galla í tækjabúnaði notanda eða stýrikerfi; c) rangra upplýsinga í Appinu um stöðu hleðslutækja, nema tjónið verði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis Orkusölunnar eða d) athafna eða þjónustu þriðja aðila.

c) Orkusalan ber ekki ábyrgð á óþægindum, töfum, kostnaði eða öðru fjártjóni, beinu eða óbeinu, vegna truflana á raforkukerfi, kerfisstýringu, fjarskiptum, netkerfum eða hugbúnaði greiðslumiðlara geta valdið því að hleðsla rofni, tefjist eða hefjist ekki.

d) Orkusalan ber ekki ábyrgð á tjóni eða vanefnd sem rekja má til atvika sem hún hefur ekki með sanngirni getað haft stjórn á, þ.m.t. en ekki takmarkað við náttúruhamfarir, styrjaldir, verkföll, almennt rafmagns- eða fjarskiptaleysi, netárásir eða bilanir hjá þjónustuveitendum, greiðslumiðlurum eða samstarfsaðilum Orkusölunnar (force majeure) eða vegna lagaskyldna sem Orkusölunni ber að fylgja. Ákvæði þessarar greinar á ekki við um tjón sem rekja má til vanrækslu Orkusölunnar á eðlilegu viðhaldi eigin búnaðar.

e) Ef notandi telur sig hafa orðið fyrir tjóni eða telur galla vera á þjónustunni, skal hann tilkynna það til Orkusölunnar eins fljótt og auðið er á netfangið orkusalan@orkusalan.is eigi síðar en innan 60 daga frá því að atvikið átti sér stað. Berist kvörtun ekki innan þess frests fellur réttur til bótakrafna niður.

9. Meðferð persónuupplýsinga

a) Við framkvæmd og í tengslum við þjónustuna er nauðsynlegt að vinna ýmsar persónu­upplýsingar um notanda, t.a.m. samskiptaupplýsingar, opinberar upplýsingar. Þær persónu­upplýsingar sem Orkusalan fær frá notenda eða þriðja aðila í tengslum við notkun Appsins og eru notaðar við framkvæmd þjón­ustunnar eru unnar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónu­upplýsinga. Notandi er eigandi þeirra gagna sem unnið er með af hálfu Orkusölunnar í tengslum við þjónustuna.

b) Notandi samþykkir að Orkusalan vinni persónuupplýsingar um hann sem snúa að notkun Appsins í samræmi við persónuverndarstefnu, öryggisstefnu og skilmála Orkusölunnar, sem innihalda ítarlegar upplýsingar um öryggismál og meðferð Orkusölunnar á persónuupplýsingum. Orkusalan áskilur sér rétt til að uppfæra stefnur og skilmála sína og er ávallt sú útgáfa í gildi sem aðgengileg er á hverjum tíma á vefsíðu Orkusölunnar www.orkusalan.is.

10. Upplýsingamiðlun, sérsniðið efni og afsláttarkjör

a) Orkusölunni er heimilt að hafa samband við notanda með tölvupósti, síma eða með ýti-tilkynningum (push notifications) í appinu til að miðla mikilvægum rekstrarupplýsingum (s.s. vegna bilana, viðhalds eða breytinga á skilmálum).

b) Notendum Appsins bjóðast reglulega ýmiss sérkjör og afslættir. Nánari upplýsingar um afslætti hverju sinni á stöðvum Orkusölunnar og hjá samstarfsaðilum má finna í Appinu eða á vefsíðu Orkusölunnar.

c) Orkusalan mun einungis senda viðskiptavini tilkynningar/skilaboð ef hann samþykkir slíkt í Appinu. Skilaboðin/tilkynningarnar munu varða notkun viðskiptavinar á þeirri þjónustu sem er í boði hverju sinni, s.s. hvar sending viðskiptavinar er stödd í kaupferlinu. 

11. Breytingar á skilmálum þessum

a) Orkusalan áskilur sér allan rétt til að ákvarða einhliða þá þjónustu sem er í boði í Appinu á hverjum tíma og rjúfa aðgang að upplýsingum um stundarsakir fyrirvaralaust og án tilkynningar ef þörf krefur, svo sem vegna uppfærslu skráa, breytinga kerfis og þess háttar.

b) Orkusölunni er heimilt að breyta skilmálum þessum einhliða hvenær sem er og taka slíkar breytingar gildi án fyrirvara nema um sé að ræða verulegar breytingar sem kunna að hafa íþyngjandi áhrif á notendur. Slíkar breytingar skulu tilkynntar með hæfilegum fyrirvara. Haldi notandi áfram að nota appið eftir gildistöku breytinga, telst hann hafa samþykkt þær.

12. Framsal

a) Notanda er óheimilt að framselja réttindi sín eða skyldur samkvæmt skilmálum þessum til þriðja aðila án fyrirfram skriflegs samþykkis Orkusölunnar. Sérhvert framsal án slíks samþykkis er ógilt.

b) Orkusölunni er heimilt að framselja réttindi sín og skyldur samkvæmt skilmálum þessum til félags innan sömu samstæðu eða í tengslum við sölu á rekstri eða eignum félagsins, enda hafi það ekki í för með sér skerðingu á réttindum notanda.

13. Riftun, lokun aðgangs og uppsögn

a) Notandi getur hvenær sem er eytt aðgangi sínum að appinu sjálfu, að því tilskildu að allar útistandandi greiðslur og hleðslufærslur hafi verið gerðar upp að fullu.

b) Orkusalan áskilur sér rétt til að loka fyrir aðgang notanda ef rökstuddur grunur leikur á misnotkun, sviksemi, ólögmætu athæfi, eða ef notandi brýtur gegn öryggis- eða umgengnisreglum félagsins. Þegar rökstuddur grunur leikur á sviksemi eða ólögmætu athæfi er Orkusölunni heimilt að loka fyrir aðgang fyrirvaralaust. Sé um að ræða endurtekna höfnun á skráðu greiðslukorti án þess að grunur leiki á sviksemi, skal Orkusalan fyrst senda notanda viðvörun og veita honum hæfilegt tækifæri til að uppfæra greiðsluupplýsingar áður en aðgangi er lokað af þeirri ástæðu.

c) Ef notandi brýtur gegn skilmálum þessum eða öðrum skilmálum Orkusölunnar er Orkusölunni heimilt að loka fyrir aðgang hans að Appinu. Hið sama á við ef notandi verður uppvís að misnotkun eða tilraun til misnotkunar á upplýsingum sem aðgengilegar eru í Appinu.

14. Kvartanir, lausn ágreiningsmála og varnarþing

a) Kvörtunum, ábendingum og fyrirspurnum sem varða Appið, hleðsluþjónustuna eða aðra þjónustu er hægt að tilkynna til Orkusölunnar á orkusalan@orkusalan.is.

b) Komi upp ágreiningur milli notanda og Orkusölunnar skulu aðilar fyrst leitast við að leysa hann í sátt. Sé notandi neytandi og ágreiningi ekki lokið með sátt, á hann rétt á að bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa (www.kvth.is), Borgartúni 21, Reykjavík.

c) Að öðrum kosti, eða takist ekki að leysa ágreining fyrir kærunefnd, gilda íslensk lög um skilmála þessa og má reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

15. Gildistaka

a) Skilmálar þessir taka gildi 16. nóvember 2026.