
Óðinn Andrason, orkuvinnsla og þróun
Óðinn Andrason hóf störf hjá Orkusölunni sumarið 2025 sem sérfræðingur í orkuvinnslu og þróun.
,,Mín helstu verkefni hjá Orkusölunni eru allt sem tengist þróun nýrra virkjanakosta og annarra tækifæra. Umsóknir um ýmis leyfi og samskipti við fagstofnanir. Greining á mælingum og gögnum. Frummat á fýsileika virkjana og MJÖG gróf hönnun. Hagkvæmnimat, landfræðivinnsla og kortegerð. Kannanir á möguleikum í vindorkunýtingu, rafhlöðunotkun og birtuorku. Svo eitthvað sé nefnt," segir Óðinn

Hvað gerir Orkusöluna að góðum vinnustað?
,,Allt frábæra starfsfólkið og menningin. Mikil jákvæðni, hjálpsemi, dugnaður og hrós. Fría naslið á kaffistofunni er risastór plús! Ekki má gleyma hádegisræktarhópunum, en hann heldur manni virkilega á tánum og þar er ekkert gefið eftir," segir Óðinn en hann kemur brosandi í vinnuna á hverjum morgni og smitar jákvæðni út frá sér hvert sem hann fer.

Hvað er stuð fyrir þér?
,,Ákveðið hugarástand sem maður kemst í þegar maður er í góðri stemmingu með hressu fólki. Þess vegna erum við hjá Orkusölunni alltaf í stuði ;)," segir Óðinn sem hefur heldur betur sett sitt mark á stuðið hjá Orkusölunni.