Halla Marinósdóttir er nýr stjórnandi hjá Orkusölunni.

Stuðblogg - Halla Marinósdóttir, stjórnandi árangurs og stjórnarhátta

Ég var svo heppin að fá að taka þátt í stefnumótunarvinnu Orkusölunnar árið 2023 þegar fyrirtækið stóð á áhugaverðum tímamótum. Árin á undan hafði Orkusalan vaxið hratt, bæði hvað varðar verkefni og fjölda starfsfólks. Markmiðið með stefnumótunarvinnunni var einfalt, að skapa sameiginlega sýn á framtíðina, skýra forgangsröðun og tryggja að við værum öll að stefna í sömu átt.

Úr þeirri vinnu varð til fimm ára leikplan Orkusölunnar sem nær til loka ársins 2028. Við skilgreindum sjö stefnumið sem eru okkar vegvísar næstu árin. Þar má m.a. nefna aukna áherslu á eigin orkuframleiðslu, bæði með nýjum virkjanakostum og endurbótum á þeim virkjunum sem við eigum í dag, sem og aukna ánægju viðskiptavina, sem eru okkur mjög mikilvæg.

Stefnumótun og hvað svo?

Nú eru liðin rúm tvö ár frá því að stefnan var mótuð og nóg eftir! Á þeim tíma höfum við lært margt og staðið frammi fyrir ýmsum áskorunum. Það er RISA áskorun að halda stefnunni og markmiðum lifandi í daglegu starfi og tryggja að verkefni jafnt sem áskoranir styðji við þau markmið sem sett voru. Til að styðja við framkvæmd stefnunnar höfum við nýtt okkur OKR - aðferðarfræðina. Hún hefur hjálpað okkur að brjóta markmiðin niður í smærri og skýrari áfanga sem við vinnum á hverjum ársfjórðungi. Innleiðingin tókst en var alls ekki fullkomin.
Fyrstu markmiðin og mælikvarðarnir okkar voru ekki alltaf rétt né endilega þau bestu. En með því að henda okkur í djúpu laugina og byrja höfum við smám saman byggt upp betri vinnubrögð og skýrari fókus þegar kemur að markmiðum félagsins.

Staðan í dag

Innleiðingin snýst ekki bara um nýja aðferðafræði sem mun fleyta okkur alla leið í mark heldur þarf hugarfar og menning að fylgja með. Stærsta áskorunin hefur verið að fá okkur til að færa fókusinn frá verkefnum yfir í mælanlegan árangur. Ekki aðeins að spyrja hvort við kláruðum verkefnið, heldur hvort það skilaði þeim árangri sem við ætluðum okkur.

Nú er seinni hálfleikur hafinn og við ætlum að mæta með fullum krafti. Raforkumarkaðurinn er á mikilli hreyfingu, tæknin heldur áfram að þróast og væntingar viðskiptavina breytast stöðugt. Við ætlum að vera á tánum og halda áfram að þróast með umhverfinu án þess að missa sjónar á því sem skiptir mestu máli. Ég hlakka til að sjá hvert næstu skref leiða okkur og hvernig við munum halda áfram að byggja upp Orkusöluna til framtíðar.