Stuðblogg - Birgir Guðjónsson, sérfræðingur í viðskiptakerfum

Hvað gerir þú í vinnunni? Til að svara þessari algengu spurningu á skilmerkilegan hátt er gott að vera með svokallaða lyfturæðu. Með henni er reynt að koma eins miklum upplýsingum, ekki of flóknum, til skila á sem skemmstum tíma á mannamáli.

Mín er: „Ég er sérfræðingur í viðskiptakerfum Orkusölunnar, hef mjög mikla þekkingu á orkureikningakerfinu og vinn við að þróa það og samþætta með öðrum kerfum“

Ég fæ oft á tilfinninguna að fólk hugsi að það sé nú ekki flókið að gera reikninga fyrir rafmagni? Að ég sendi inn álestur einu sinni á ári sem reiknar upp notkun milli tveggja álestra og sendi fólki reikning fyrir þeirri notkun. Hljómar einfalt, ekki satt?

Ein kWh, margar ólíkar leiðir

Það er að vissu leyti rétt, það er nefnilega ekkert flókið að senda reikninga fyrir notkun á rafmagni. Hins vegar hefði mig aldrei grunað hvað það er í raun hægt að selja eina kWh með mörgum ólíkum leiðum fyrr en ég byrjaði að starfa í þessum bransa.

Eina kWh er t.d. hægt að selja á tvenns konar virðisaukaskatti, 11% og 24%. Afsláttarleiðir eru mismunandi, verð byggð á tíma dags sem kWh er seld og upprunaábyrgðir sem fylgja þeim, svo einhver dæmi séu tekin, að ógleymdri leigu á hleðslustöðvunum sem fylgja nú oftast með rafmagnsnotkuninni.

Orkureikningakerfi innleitt af Advania

Til þess að geta mætt þeim þörfum og þeim nýjungum á orkumarkaði tók Orkusalan upp nýtt kerfi síðla árs 2020 og innleiddi kerfið MECOMS. Orkureikningakerfið var innleitt af Advania ásamt framleiðanda kerfisins, Ferranti, sem kemur frá Belgíu. Fjárhagskerfið sem fyrir var hjá Orkusölunni við innleiðingu MECOMS var Ax 2012 og því var mikill kostur að MECOMS er samþætt Ax 2012.

Orkusalan er því með fjárhags- og orkureikningakerfið sitt í einu og sama viðmótinu. Það gerir vinnuna skilvirkari þegar færri kerfi ná yfir víðtækari hluta starfsins. MECOMS gerir okkur kleift að mynda reikninga til viðskiptavina okkar eftir þörfum hvers og eins. Hvort sem það er fyrir rafmagn, rafhitun eða leigu á hleðslustöðvum hefur MECOMS komið sér einstaklega vel.

Skýjalausn MECOMS og Ax2012

Þrátt fyrir að núverandi kerfi nýtist okkur mjög vel í dag eru þau ekki eilíf. Það er fyrirséð í náinni framtíð að Orkusalan horfi til þeirra skýjalausna sem í boði eru. Bæði MECOMS og Ax 2012 hafa tekið skrefið og bjóða nú vöruna sína í skýjalausn. Við hjá Orkusölunni horfum að sjálfsögðu til framtíðar og viljum nýta okkur þær tækninýjungar sem nýtast í okkar starfsemi. Það eru því krefjandi og jafnframt spennandi tímar framundan hjá Orkusölunni. Það er von okkar að við munum geta veitt viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu, auknum sýnileika gagna og meira stuði á komandi árum.