
Stuðblogg - Stefán Jóhannsson, sérfræðingur í orkumiðlun
Orkumiðlun er ekki alltaf sýnileg, en hún er grundvallarhluti þess að raforkukerfið virki hnökralaust. Hjá okkur í Orkusölunni snýst orkumiðlun um eitt meginverkefni: að spá fyrir um álagsnotkun í kerfinu og kaupa raforku inn í samræmi við þær spár. Rétt magn á réttum tíma er lykilatriði.

Álagsnotkun er síbreytileg
Álagsnotkun í raforkukerfinu er síbreytileg. Hún fer eftir árstímum, veðri, vikudögum og klukkustundum – og getur breyst hratt þegar aðstæður taka óvænta stefnu. Þess vegna er spávinna einn mikilvægasti þáttur orkumiðlunar. Með því að greina söguleg gögn og ytri áhrif er reynt að áætla hversu mikla raforku kerfið mun þurfa á hverjum tíma.
Spárnar eru þó aldrei fullkomnar. Þær byggja á líkum og forsendum sem geta breyst og því þarf orkumiðlun að vera lifandi ferli. Fylgst er með þróuninni og gripið inn í ef frávik verða milli áætlaðs og raunverulegs álags.

Þegar spá liggur fyrir tekur við innkaupaþátturinn. Orkusalan kaupir raforku í samræmi við áætlaða notkun, með það að markmiði að halda innkaupaverði sem lægstu. Of lítil eða of mikil innkaup geta skapað óþarfa frávik sem hefur aukin kostnað í för með sér. Hvorugt er æskilegt og því er nákvæmni í spám og innkaupum lykilatriði í daglegri vinnu.
Orkumiðlun er í eðli sínu tæknilegt verkefni, en hún krefst einnig skilnings á heildarmyndinni. Kerfið er flókið og margir þættir hafa áhrif á það samtímis. Veðurbreytingar, óvenjulegt álag eða breytingar í notkunarmynstri geta kallað á endurmat á spám og innkaupum með litlum fyrirvara.

Hjá Orkusölunni er lögð áhersla á fagleg vinnubrögð í orkumiðlun. Markmiðið er að byggja á traustum gögnum, vönduðum spám og eftirliti með álagsþróun. Með því er tryggt að innkaup raforku styðji við stöðugan rekstur raforkukerfisins ásamt því að geta boðið viðskiptavinum Orkusölunnar hagstæð kjör.
Þótt orkumiðlun sé sjaldan í sviðsljósinu er hún ómissandi hluti af rekstri Orkusölunnar. Þegar hún gengur vel tekur enginn eftir henni – og einmitt þá er markmiðinu náð.