Orkusalan vinnur alþjóðleg verðlaun sem besta græna vörumerkið

Orkusalan var í dag útnefnt sem The World’s Best Green Brand á alþjóðlegri verðlaunahátíð Charge Awards 2025 sem fer nú fram í 10. sinn, í Istanbul í Tyrklandi. Verðlaunin eru þau virtustu í orkugeiranum á sviði vörumerkja og eru þau fyrirtæki heiðruð sem standa framar en önnur þegar kemur að mörkun fyrirtækja. Orkusalan stóð uppi sem sigurvegari í mjög sterku liði tilnefndra fyrirtækja á heimsvísu sem leggja áherslu á sjálfbæra orku, umhverfisvernd og samfélagslega ábyrgð.

„Við erum ótrúlega stolt af þessari alþjóðlegu viðurkenningu en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt orkufyrirtæki vinnur verðlaunin“ segir Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu, þjónustu og markaðsmála hjá Orkusölunni. „Það er mikill heiður að standa uppi sem sigurvegari meðal stórra og öflugra alþjóðlegra fyrirtækja sem byggja á öflugu markaðsstarfi og hafa sterka sýn á sjálfbærni og framtíðina. Árangursríkt markaðsstarf og skýr mörkun er lykillinn að því að miðla mikilvægi grænna aðgerða og auka vitund um orkumál.”