
Orkusalan og SHA eru í STUÐI saman!
Við erum stolt af því að styðja við Stúdentafélag Háskólans á Akureyri, leggja okkar af mörkum til háskólasamfélagsins og styðja við stúdenta í þeirra mikilvæga námi og félagslífi.
SHA gegnir mikilvægu starfi í lífi stúdenta, heldur stuðinu á lofti og styrkir enn frekar öflugt háskólasamfélag.
Við sendum stuðkveðjur á alla háskólanemendur fyrir komandi prófatíð! Á myndinni hér til hliðar má sjá Rakel Sif Davíðsdóttur, fjármálastjóra SHA og Sigmundínu Þorgrímsdóttur, sérfræðing í markaðsmálum.