
Steinþór Freyr Steinþórsson, sérfræðingur í hleðslulausnum
Steinþór hóf störf hjá Orkusölunni í apríl 2025. Hann sinnir fjölbreyttum verkefnum hleðsluteymisins, þjónustar viðskiptavini og stýrir uppsetningu hleðslukerfa í húsfélögum.
“Ég starfa sem sérfræðingur í hleðslulausnum og verkefnin eru mjög fjölbreytt. Ég tek á móti fyrirspurnum frá húsfélögum og einstaklingum ,hvort sem um er að ræða bilanir, ráðgjöf eða ný verkefni. Ég fer í vettvangsúttektir, geri tilboð og fylgi þeim eftir," segir Steinþór.
“Orkusalan er fyrst og fremst frábær vinnustaður, með frábæru fólki. Alltaf gaman að mæta í vinnuna og takast á við verkefni dagsins engin vinnudagur eins hjá mér fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem bíða manns alla daga."

Hvað gerir Orkusöluna að góðum vinnustað?
,,Mér finnst helst skipta máli fólkið og andrúmsloftið. Það er gott að geta leitað til samstarfsfólks þegar maður þarf aðstoð og það er mikil samvinna þvert á fyrirtækið.
Mér finnst líka skemmtilegt að fá tækifæri til að taka þátt í verkefnum sem eru að þróast og sjá hlutina verða að veruleika. Það er líka mikill sveigjanleiki og traust í starfinu, sem mér finnst mjög mikilvægt," segir Steinþór

Hvað er stuð fyrir þér?
,,Fyrir mér er stuð þegar það er nóg að gera, hlutirnir eru að gerast og maður þarf að finna lausnir. Það getur verið þegar maður er með mörg verkefni í gangi í einu, síminn hringir og eitthvað óvænt kemur upp, en svo tekst manni að redda málunum og klára verkefnið, svo er auðvitað stuð þegar maður sér verkefni sem maður hefur verið að vinna að lengi loksins verða að veruleika," segir Steinþór en hann lætur verkin tala og sér til þess að húsfélög landsins komist í stuð!