
Róbert Ásgeirsson, gagnasérfræðingur
Róbert Ásgeirsson hóf störf hjá Orkusölunni í byrjun árs 2026 sem gagnasérfræðingur.
„Fyrstu mánuðirnir hjá Orkusölunni hafa verið bæði skemmtilegir og lærdómsríkir. Starfið er fjölbreytt og felur í sér að vinna með gögn, ferla og upplýsingaflæði með það að markmiði að bæta yfirsýn og styðja betri ákvarðanatöku í rekstrinum. Það sem mér finnst sérstaklega áhugavert við starfið er hversu breitt svið það spannar. Hér tengjast saman rekstur, gögn og tækni á leið sem nær allt frá hugmyndum og undirbúningi í raforkuumhverfinu til afhendingar þjónustu til viðskiptavina. Með þessu fylgja mikil gögn og upplýsingaflæði í rekstri sem býr við harða samkeppni, skýrt regluverk og síbreytilegt umhverfi.
Sem nýr í orkugeiranum hef ég sérstaklega kunnað að meta hvað samstarfsfólkið er tilbúið að deila reynslu sinni og þekkingu. Það skiptir miklu máli að koma inn á vinnustað þar sem fólk gefur sér tíma, svarar af einlægni og hjálpar manni að skilja bæði stóru myndina og það sem skiptir máli í daglegum rekstri.“ segir Róbert

Hvað gerir Orkusöluna að góðum vinnustað?
Róbert er mikill liðsmaður og small strax vel inn í liðheild Orkusölunnar.
„Það fyrsta sem heillaði mig við Orkusöluna var samheldnin, samstarfið og einlægni starfsfólksins. Maður finnur fljótt að hér er hugsað sem liðsheild — við erum í þessu saman, viljum leysa verkefnin enn betur á morgun og gera það af krafti og í góðu stuði“ segir Róbert.

Hvað er stuð fyrir þér?
„Fyrir mér er stuð þegar það er góður andi, skýr samvinna og metnaður til að gera hlutina betur. Það er líka stuð þegar fólk vinnur saman af hreinskilni, hjálpast að og nær að hafa gaman á leiðinni“
segir Róbert en hann er búinn að setja gögn Orkusölunnar á næsta stuðplan!