Elísabet Halldórsdóttir, sölu- og þjónusturáðgjafi

Elísabet Halldórsdóttir hóf störf hjá fyrirtækinu í byrjun árs 2023 og er því nýjasti meðlimur Orkusölunnar.

Elísabet vinnur náið með Áslaugu í þjónustuverinu þar sem enginn dagur er eins. ,,Ég starfa í þjónustuverinu sem felur í sér að aðstoða viðskiptavini okkar við hin ýmsu erindi sem koma upp," segir Elísabet

Hvað gerir Orkusöluna að góðum vinnustað?

Þrátt fyrir stuttan tíma hjá fyrirtækinu þá telur Elísabet upp marga kosti þegar kemur Orkusölunni sem vinnustað. ,, Það er mjög góður starfsandi hjá okkur, skemmtilegt samstarfsfólk og föstudagskaffið er ómissandi og mætti vera alla daga mín vegna," segir Elísabet en það er gaman að segja frá því að Elísabet er mikill súrdeigsbakari.

Hvað er stuð fyrir þér?

,,Gott fólk og góð tónlist, blanda sem klikkar seint og býður alltaf upp á stuð," segir Elísabet