
Birgir Guðjónsson, þróunarstjóri viðskiptakerfa
Birgir Guðjónsson hefur starfað hjá Orkusölunni í þrjú ár sem þróunarstjóri viðskiptakerfa.
,,Mín helstu verkefni hjá Orkusölunni snúa að þróun, innleiðingu og umbótum í okkar ferlum og kerfum. Ég vinn mikið með fólki þvert á fyrirtækið að því að finna betri leiðir, styðja við breytingar og passa að verkefni skili raunverulegu virði fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini. Við vinnum með mörgum ólíkum byrgjum til að styðja við okkar rekstur. Það er því mikil fjölbreytni í verkefnum mínum hjá Orkusölunni. Mér finnst skipta mestu máli að gera hlutina skýrari, einfaldari og árangursríkari og reyni hvað ég get að komast hjá því að flækja hlutina, þó það sé ekki alltaf hægt að komast hjá því," segir Birgir

Hvað gerir Orkusöluna að góðum vinnustað?
,,Það sem gerir Orkusöluna að góðum vinnustað er fyrst og fremst fólkið. Hér er góður liðsandi og mikil vinátta milli fólks. Skrifstofan okkar er líka ekkert eðlilega hugguleg og sem hjálpar til við að skapa gott vinnuumhverfi. Menningin sem hefur skapast hér, gleðin og samheldnin, er eitthvað sem við höldum öll saman fast í að viðhalda. Ég trúi því að það sé erfitt að búa til svona góðan anda, en svo auðvelt að skemma hana. Við leggjum okkur því öll fram í að halda í léttleika og gleði, sem passar mér einstaklega vel,, segir Biggi en hann heldur uppi stuðinu og er pílukóngurinn í Urðarhvarfi.

Hvað er stuð fyrir þér?
,,Stuð fyrir mér er klárlega blanda af góðri orku og skemmtilegu fólki, svo skemmir ekkert ef það er góð tónlist og mögulega einn kaldur með," segir Biggi en það er alltaf hægt að treysta á að hann skrúfi stuðið í botn.