
Andri Teitsson, framkvæmdastjóri orkuvinnslu og þróunar
Andri Teitsson hóf störf hjá Orkusölunni haustið 2023 sem framkvæmdarstjóri orkuvinnslu og þróunar.
,,Helstu verkefnin eru annars vegar að stýra hugmyndavinnu og undirbúningi vegna nýrra virkjunarkosta út um allt land ásamt þróunarteyminu, hins vegar umsjón og ábyrgð á rekstri virkjananna okkar í góðu samstarfi við sérfræðinga okkar á Austur- og Norðurlandi" segir Andri

Hvað gerir Orkusöluna að góðum vinnustað?
,,Hæfileg blanda af ábyrgð og léttleika. Allir þekkjast vel og treysta hver öðrum, þá er auðveldara að róa í takt," segir Andri

Hvað er stuð fyrir þér?
,,Að hlaupa um fjöllin í kringum Akureyri á fallegum sumardegi, það er stuð fyrir mér" segir Andri en hann hefur tekið þátt í ótal mörgum hlaupum vítt og breytt um heiminn og er okkar helsti ITRA-stiga kóngur.