Helga Beck, markaðsstjóri

Helga Beck tók við starfi markaðsstjóra í ársbyrjun 2025. Hún stýrir verkefnum sem snúa að vörumerki Orkusölunnar, stefnumótun, áætlanagerð og framkvæmd herferða.

“Markaðsdeildin er svolítið alt mugligt mand, við erum hinir eiginlegu STUÐstjórar ef þú spyrð mig. Engir tveir dagar eru eins og ég fæ að nota bæði heilahvelin í vinnunni þar sem hún er krefst þess bæði að vera skapandi og geta unnið strategíu vinnu. Hið fullkomna kombó!" segir Helga

Hvað gerir Orkusöluna að góðum vinnustað?

“Það er svo margt en fyrst og fremst er það fólkið. Það ríkir hér alveg ótrúleg samheldni og vinátta sem gerir það mjög auðvelt að tækla verkefnin saman. Það eru forréttindi að vinna á stað þar sem fólk tekur á móti þér á hverjum degi og er glatt að sjá þig, og okkur langar raunverulega að eyða tíma saman, ekki bara í vinnunni líka utan hennar," segir Helga.

“Orkusalan hugsar líka ofsalega vel um sína starfsmenn og gerir mikið fyrir þau. Svo erum við örugglega með eina flottustu skrifstofu landsins, allavega með besta útsýnið!" segir Helga sem lætur heldur betur til sín taka á dansgólfinu.

Hvað er stuð fyrir þér?

“Stuð fyrir mér getur verið alls konar, bæði há- og lágstemmt. Maður getur verið í góðu stuði heima að prjóna og horfa á þátt en líka öskursyngjandi í kareókí. Stuð er einhver kraftur í maganum, einhver tilfinning sem myndast þegar maður situr vel í sér. Stuð er líka eitthvað sem maður sækir í umhverfið og fólkið í kringum mann. Ég vil helst vera umkringd fólki alla daga, alltaf, og sæki mikið stuð úr því" segir Helga