
Stuðblogg - Óðinn Andrason, orkuvinnsla og þróun
„Fyrsta skrefið í undirbúningi nýrrar virkjunnar er að skoða kort af viðkomandi vatnasviði, meta á hvaða kafla er mikil fallhæð og ákvarða mögulegar staðsetningar fyrir stíflugerð og stöðvarhús“
segir Óðinn Andrason, sérfræðingur á þróunarsviði Orkusölunnar.

Þróunarverkefni Orkusölunnar
Vegna aukinnar eftirspurnar eftir rafmagni vinnur Orkusalan nú að þróun nýrra virkjunarkosta í vatnsafli, jarðvarma og vindorku. Sá kostur sem lengst er kominn er Gilsárvirkjun í Eiðaþinghá á Héraði, 6,7 MW vatnsaflsvirkjun.
Virkjunin flokkast sem lítil virkjun en mun þó framleiða nóg rafmagn til að knýja um 9 þúsund heimili. Síðasta haust lauk formlegu mati á umhverfisáhrifum virkjunarinnar. Það er mikilvægt skref í undirbúnings- og leyfisveitingarferli en nú er unnið að gerð deiliskipulags í samstarfi við sveitarfélagið.

Hvernig fer undirbúningurinn fram?
„Með stíflu í meiri landhæð nær maður meiri fallhæð en missir af lækjum og hliðarám og þar með rennsli. Afl og orka virkjunar eru háð bæði rennsli og fallhæð og því þarf að finna gott jafnvægi þar á milli. Auk þess er mikilvægt er að það sé tenging nálægt, annaðhvort við dreifiveitu eða flutningskerfið.
Næst eru framkvæmdar nákvæmari rannsóknir á rennsli, jarðfræði, landslagi og fleiru. Svo er nákvæmari útfærsla virkjunar hönnuð og nauðsynlegra leyfa aflað. Að því loknu er loks hægt að hefja framkvæmdir. Á öllum stigum þróunar er mikilvægt að huga að því að lágmarka umhverfisáhrif virkjunar. Ferlið í heild sinni tekur nokkur ár" segir Óðinn Andrason