StuðStreymi í Sjónvarpi Símans

StuðStreymi í Sjónvarpi Símans

Orkusalan frumsýndi tvær tónleikamyndir sem teknar voru upp í tveimur af okkar virkjunum, en Orkusalan á og rekur sex vatnsaflsvirkjanir ⚡️
Úlfur Úlfur og Inspector spacetima héldu uppi stuðinu í Skeiðsfossvirkjun og Grímsárvirkjun, en þetta er tónleikaröð þar sem virkjanir Orkusölunnar breytast í óvenjulega tónleikastaði. Í einstakri umgjörð mætast íslensk tónlist, stórbrotin náttúra og stuðið sem knýr okkur öll. Þið getið núna notið með okkur og fengið stuðið beint í æði. Fyrri tónleikamyndin er frumsýnd í Sjónvarpi Símans í kvöld, fimmtudaginn 12.nóvember.

Hér að neðan má sjá svipmyndir úr frumsýningarpartíi í Bíó Paradís.