
Sigmundína kjörin í stjórn KÍO
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Orkusölunni, hefur verið kjörin í nýja stjórn Kvenna í orkumálum, KÍO, á síðasta aðalfundi félagsins. Í fráfarandi stjórn sat Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar, og erum við virkilega stolt af því að eiga fulltrúa í röðum KÍO. Valdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri auðlinda hjá HS Orku, var kjörin formaður KÍO.
Stjórnina skipa ásamt Valdísi,
•Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi hjá Samorku.
•Hrefna Björg Gylfadóttir, verkefnastjóri innleiðingar stefnu hjá Veitum.
•Ragnhildur Thorlacius, lögfræðingur hjá Orkuveitunni.
•Rósa Jakobsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu hjá Landsvirkjun.
•Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Orkusölunni.
•Sigurborg Rútsdóttir, verkefnastjóri hjá Rarik.
•Stefanía Sif Stefánsdóttir, sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis hjá Landsneti.
•Unnur Ylfa Magnúsdóttir, viðskiptastjóri hjá Landsvirkjun.
•Valgerður B. Eggertsdóttir, leiðtogi hagaðilatengsla og sjálfbærni hjá Orku náttúrunnar.

Þakklát fyrir traustið
,,Ég er virkilega þakklát fyrir traustið og hlakka til komandi tíma. Fráfarandi stjórn hefur gert frábæra hluti og verður spennandi að fá að byggja ofan á það góða starf sem hefur verið unnið á undanförnum árum. Það að tengjast þessum kjarnakonum og gera kvenfyrirmyndir sýnilegri er mér hjartansmál.
KÍO gegnir lykilhlutverki í því að efla þátt kvenna í orkumálum, styrkja tengslin og auka áhrif innan orku- og veitugeirans. Ég vil taka þátt í því að lyfta upp konum í orkumálum og sýna að við séum allar í stuði, þessar rafmögnuðu gellur" segir Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Orkusölunni.

Konur í orkumálum
Það er mikill heiður að eiga fulltrúa í stjórn KÍO. Mikil áhersla er lögð á jafnréttismál innan raða Orkusölunnar og tökum við virkan þátt í því að lyfta okkar fólki upp.
Hlutverk KÍO er að efla þátt kvenna í orkumálum, styrkja tengsl þeirra og auka áhrif innan orku- og veitugeirans. Félagið er opið öllum þeim sem vilja stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika í atvinnugreininni og sýna það í verki.