Andri Teitsson, framkvæmdastjóri orkuvinnslu og þróunar

Hætt við frekari rannsóknir í Gilsá á Völlum

Orkusalan hefur ákveðið að falla frá rannsóknarleyfi sínu vegna mögulegrar vatnsaflsvirkjunar í Gilsá á mörkum Valla og Skriðdals á Fljótsdalshéraði.

Ákvörðunin var tekin í kjölfar funda með landeigendum á svæðinu þar sem þeir komu sjónarmiðum sínum skýrt á framfæri. Þar lögðu þeir áherslu á að Hjálpleysidalur væri einstakt og lítt raskað náttúrusvæði sem mikilvægt væri að varðveita.

„Við leggjum áherslu á að eiga opið samtal við landeigendur og samfélög á þeim svæðum þar sem við skoðum möguleika til framtíðar. Þegar ljóst var að ekki var vilji til frekari rannsókna eða framkvæmda á svæðinu töldum við rétt að virða þá afstöðu og hætta við verkefnið,“ segir Andri Teitsson, framkvæmdastjóri orkuvinnslu og þróunar hjá Orkusölunni.

Orkusalan hafði sótt um rannsóknarleyfið til að kanna möguleika á verkefni sem gæti tengst núverandi starfsemi fyrirtækisins í Grímsá í Skriðdal. Eftir samtal við landeigendur var hins vegar ákveðið að halda ekki áfram með rannsóknir á svæðinu.

Fyrirtækið sendi Umhverfis- og orkustofnun erindi um niðurfellingu leyfisins þann 5. maí og hefur stofnunin staðfest þá ákvörðun.

Virðing fyrir náttúru, nærsamfélögum og ólíkum sjónarmiðum er mikilvæg forsenda í þróun orkukosta hjá Orkusölunni. Fyrirtækið mun áfram vinna að verkefnum þar sem grundvöllur er fyrir góðu samstarfi og uppbyggilegu samtali við þá sem málið varðar.