
Orkusalan opnar hraðhleðslustöðvar í Stykkishólmi
Orkusalan opnaði á föstudaginn var tvær hraðhleðslustöðvar við Nesveg 1 í Stykkishólmi. Opnunin er liður í áframhaldandi uppbyggingu StoppuStuðs og styrkir aðgengi rafbílaeigenda að öflugri hleðslu á Snæfellsnesi.
"Við erum stöðugt að bæta við hleðslunetið okkar og eru hraðhleðslustöðvarnar góður kostur fyrir ferðalanga sem þurfa hlaða hratt og örugglega á lengri ferðum. Að ferðast á rafbíl breytir aðeins ferðalögum fólks en gefur á sama tíma tækifæri til að stoppa og njóta þeirrar þjónustu sem bæjarfélögin hafa upp á að bjóða. Þess vegna erum við glöð að vera hér við hlið bakarísins svo fólk getur hlaðið sig meðan það hleður bílinn" segir Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar.

Það er stuð í Stykkishólmi
Á staðnum er annars vegar 150 kW hraðhleðslustöð með tveimur CCS-tengjum og hins vegar 50 kW stöð með einu CCS-tengi og einu CHAdeMO-tengi. Með stöðvunum bætast því við fjölbreyttir hleðslumöguleikar sem nýtast bæði íbúum svæðisins og þeim sem eiga leið um Stykkishólm.
"Ég er alveg hrikalega spenntur fyrir þessari viðbót. Með þessu erum við að stórauka þjónustu við Snæfellsnesið og tenginguna við Vestfirði með Baldri. Svo er nýtt hleðsluapp væntanlegt og þá fáum við enn betra tækifæri til að þjónusta okkar kúnna." segir Friðrik Valdimar Árnason, teymisstjóri hleðslulausna hjá Orkusölunni.