
Orkusalan og SHA eru áfram í STUÐI saman!
Við erum stolt af því að styðja áfram við þetta mikilvæga starf og hjálpa SHA að halda stúdentum í stanslausu stuði í skólanum. Orkusalan heldur áfram að leggja sitt af mörkum til öflugs og lifandi háskólasamfélags.
"Okkur hjá Orkusölunni finnst mikilvægt að styðja við bakið á stúdentum. Námsárin einkennast af miklum metnaði og grósku en það verður alltaf að vera pláss fyrir stuð. Við erum því virkilega stolt af því að halda áfram farsælu samstarfi við SHA og sendum öllum stúdentum stuðkveðjur," segir Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Orkusölunni.