Nýtt hleðsluapp væntanlegt

Orkusalan hefur undirritað samning við Gangverk um nýtt hleðsluapp fyrir fyrirtækið og er vinna langt á veg komin. Appið byggir á grunni frá fyrirtækinu Ampeco sem þykir eitt fremsta kerfi á sínu sviði.

„Gangverk spilar hér lykilhlutverk í hönnun appsins og við erum þakklát að fá þeirra reynslu að borðinu“ segir Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar.

Með nýju hleðsluappi mun Orkusalan geta þjónustað viðskiptavini sína enn betur á ört stækkandi hleðsluneti kringum landið. „Þetta er stórt skref að koma með okkar eigið app og geta þannig mætt viðskiptavinum okkar í stuði og tryggt að þau fái örugga og hraða hleðslu“ segir Friðrik Valdimar Árnason, teymisstjóri hleðslulausna. Orkusalan rekur í dag hraðhleðslustöðvar auk fjölda hverfis- og heimahleðslustöðva. Krafa neytenda um aðgengi að stafrænni þjónustu er sífellt að verða meiri og er þetta liður í að skapa einn snertiflöt fyrir alla þjónustu Orkusölunnar. „Það hefur verið ánægjulegt að vinna með Orkusölunni að þróun appsins. Gott samstarf teymanna og sameiginleg sýn á einfaldleika og þægindi fyrir viðskiptavini hafa verið lykillinn að verkefninu.“ bætir Haukur Kristinsson, tæknistjóri Gangverks.

Appið er væntanlegt á næstu vikum og verður aðgengilegt fyrir bæði Apple og Android.