Ný hleðslustöð á Borgarfirði eystri

Orkusalan hefur opnað 150 kW hraðhleðslustöð á Borgarfirði eystri með tveimur CCS tengjum. Við erum sífellt að bæta við fleiri stöðvum um land allt og er þessi hraðhleðsla kærkomin viðbót í hleðslunetið á Austurlandi.

Við fögnum því að koma með meira stuð á Borgarfjörð eystri og hlökkum til að taka á móti rafbílaeigendum á StoppuStuð stöðvarnar okkar.