
Jafnvægisvog FKA fimmta árið í röð
Orkusalan hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fimmta árið í röð í síðustu viku. Við erum stolt af þessari viðurkenningu og leggjum áherslu á jafnrétti í öllu okkar starfi.
"Ég trúi því að jafnrétti sé meðvituð ákvörðun og að fjölbreytileiki styrki bæði ákvörðunartöku og vinnustaðamenningu. Sterk lið verða til þar sem ólík sjónarmið fá að njóta sín, allir hafa rödd og fólk fær jöfn tækifæri til að vaxa og hafa áhrif." segir Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar.
Á myndinni hér til hliðar eru Halla Marinósdóttir, stjórnandi árangurs og stjórnarhátta hjá Orkusölunni og Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar.
Losum um hnútinn!