
Allt að 5 milljónir í styrk fyrir hleðsluinnviði í fjölbýlum
Nú geta húsfélög, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sótt um styrk til Loftslags- og Orkusjóðs vegna uppbyggingar hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjölbýlishúsa.
Styrkurinn getur numið allt að 5.000.000 kr. og er ætlað að styðja við orkuskiptin með því að auðvelda uppsetningu hleðslulausna fyrir íbúa fjölbýla.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2026 og því er kjörið tækifæri fyrir húsfélög að hefja undirbúning.
Sérfræðingar Orkusölunnar aðstoða húsfélög við að finna réttu lausnina og svara ykkar spurningum, svo ekki hika við að heyra í okkur! En einnig má kynna sér hleðslulausnir fyrir fjölbýli nánar á heimasíðu okkar.
Nýtum tækifærið og hröðum orkuskiptunum saman. ⚡