
80 ára afmæli Skeiðsfossvirkjunar um verslunarmannahelgina
Orkusalan býður til skemmtilegrar samverustundar við Skeiðsfossvirkjun á Síldarævintýrinu um verslunarmannahelgina. Afmælið fer fram í fallegu og skógi vöxnu umhverfi við stöðvarhúsið og virkjunina.
Dagskrá dagsins - stuð, saga og samvera:
- Ókeypis rútuferð frá Ráðhústorginu á Siglufirði kl. 10:30 - Skráning fer fram í gegnum hlekkinn hér að neðan.
- Veitingar á svæðinu frá kl 11:00, grillaðar pylsur, drykkir, afmæliskaka og kaffi
- Hoppukastali, Kubb og Pétanque fyrir börnin
- Sýning á stöðvarhúsi og ganga að stíflunni
- Spjall við stöðvarstjóra og fræðsla um sögu virkjunarinnar og starfsemi hennar í dag
Skeiðsfossvirkjun, knúin af krafti Fljótaár, var lykilstoð í þeirri stórkostlegu uppbyggingu sem fylgdi síldarævintýrinu á Siglufirði. Hún tryggði rafmagn til verksmiðja, heimila og fyrirtækja og lagði grunn að því samfélagi sem þá byggðist upp.
Mætum sem flest í tilefni þessa merka áfanga í sögu raforkumála á Norðurlandi.
Öll eru velkomin – við hlökkum til að sjá ykkur!