 |
|
|
|
|
Öryggismál
Í samfélagi nútímans leikur rafmagn stórt hlutverk í daglegu lífi einstaklinga. Því er rík ástæða til að huga að rafmagnsöryggi. Í skýrslu frá Löggildingarstofu (nú Neytendastofa) sem gefin var út árið 2005 kemur fram að á árinu 2004 voru 89 brunar skráðir hjá Löggildingarstofu, en áætlað er að það séu tæp 13% allra bruna á landinu. Algengast er að rafmagnsbrunar verði í íbúðarhúsnæði en þar urðu 63% allra rafmagnsbruna árið 2004. Uppruni bruna mátti oftast rekja til raffanga annarra en lýsingar, eða 15% tilvika. Lýsing var næst algengasti brunavaldur í 11% tilvika en um 14% rafbruna átti uppruna sinn í fastalögnum. Það er því ljóst að það er aldrei of varlega farið. Hér til hliðar er búið að taka saman mikilvæg atriði sem tengjast rafmagnsöryggi heimila annars vegar og fyrirtækja hins vegar.
|
|
|
|
|
|