Orkusalan leitast við að mæta þörfum sinna viðskiptavina.
Hægt er að greiða reikninginn með greiðsluseðli en þá bætist seðilgjald við reikninginn sem er 126 kr. m/vsk.
Það er líka hægt að spara sér seðilgjaldið og vera í rafrænum viðskiptum og er þá reikningurinn aðgengilegur í heimabankanum og birtist með öðrum ógreiddum kröfum. Ef um beingreiðslur ræðir þurfa viðskiptavinir að hafa samband við sinn viðskiptabanka og óska eftir slíkum viðskiptum.
Einnig er hægt að vera í boðgreiðslum og þá fer reikningurinn á greiðslukort viðskiptavinar.
Safnaðu Vildarpunktum
Nú er hægt að safna Vildarpunktum þegar keypt er rafmagn. Þeir viðskiptavinir sem greiða reikninginn með Vildarkorti Visa og Icelandair fá afslátt af raforkuinnkaupum í formi Vildarpunkta sem þeir geta svo nýtt í flug með Icelandair, hótelgistingu eða bílaleigubíl svo dæmi séu nefnd.
Sjá upplýsingar um Vildarkort Visa á visa.is og Vildarklúbbinn á icelandair.is.