Orkusalan leitast við að mæta þörfum viðskiptavina sinna.
Hægt er að greiða reikninginn með greiðsluseðli en þá bætist seðilgjald við reikninginn sem er 126 kr. m/vsk.
Það er líka hægt að spara sér seðilgjaldið og vera í rafrænum viðskiptum og er þá reikningurinn aðgengilegur í heimabankanum og birtist með öðrum ógreiddum kröfum. Ef um beingreiðslur ræðir þurfa viðskiptavinir að hafa samband við sinn viðskiptabanka og óska eftir slíkum viðskiptum.
Einnig er hægt að vera í boðgreiðslum og þá fer reikningurinn á greiðslukort viðskiptavinar.
Rafrænir reikningar í gegnum viðskiptamiðstöð Spans
Orkusalan býður fyrirtækjum upp á viðskipti í gegnum viðskiptamiðsöð Spans.
Sem dæmi um ávinning af rafrænum reikningum Orkusölunnar í gegnum Span má nefna:
- Þú losnar við seðilgjöld sem eru 125 kr. af hverjum reikningi.
- Þú losnar við inneignarmál því gefinn er út kreditreikningur sem lækkar strax heildarupphæð til greiðslu.
- Þú getur skoðað reikninga Orkusölunnar á skjá beint úr viðskiptakerfi þínu.
Frekari upplýsingar er að finna á span.is