Markmið Orkusölunnar er veita fyrirtækjum þjónustu sem miðar að því að nýta raforku á sem hagkvæmastan hátt.
Það skiptir engu máli í hvaða grein þitt fyrirtæki er. Þú hefur möguleika á því að spara pening með því að tileinka þér virka raforkustjórnun innan fyrirtækisins.
Eitt af því fyrsta sem þarf að gera þegar draga á úr kostnaði við raforku er að tileinka sér raforkustýringu. Ef þú vilt innleiða betri nýtingu á rafmagni og draga úr kostnaði þá eru hér nokkur einföld ráð.
- Mældu hversu mikið af raforku fyrirtæki þitt notar með því að gera reglulegar mælingar. Þannig er auðveldara að fylgjast með árangrinum.
- Farðu skoðunarferð um fyrirtækið til að greina á skipulagðan hátt hvar raforka er nýtt og hvernig hún er notuð.
- Fáðu starfsmenn í lið með þér. Láttu þá hjálpa þér að setja upp aðgerðaáætlun sem miðar að því að nýta raforku betur. Það eru engin ný sannindi að fólk styður það sem það á þátt í að skapa.
- Útnefndu einhvern í fyrirtækinu “raforkustjóra” sem sér um að útdeila ábyrgð til annarra starfsmanna á tilteknum sparnaðaraðgerðum, eins og að slökkva á ljósum þegar starfsfólk fer heim.
- Fylgstu með árangrinum og vertu stöðugt að endurmeta raforkustýringarferlin.
- Notaðu orkusparandi ljósaperur.
- Komdu fyrir hreyfiskynjurum sem stýra ljósum á svæðum sem eru ekki í stöðugri notkun eins og t.d. á salernum og í fundarherbergjum.
- Notaðu tímarofa til stoppa óþarfa notkun á lýsingu.
- Fáðu starfsmenn tölvudeildar fyrirtækisins til að hjálpa þér. Láttu þá finna út úr því hvernig hægt er að stilla skjái, tölvur og annan búnað með orkusparandi hætti.
- Ekki skilja eftir rafmagnstæki eins og tölvur og ljósritunarvélar í gangi eða á hvílu í langan tíma meðan þau eru ekki í notkun.