Orkusalan selur raforku til fyrirtækja, stofnana og heimila á öllu landinu. Í kjölfar breyttra raforkulaga um áramótin 2005 var sala á raforku gefin frjáls. Frá áramótum 2006 gátu allir viðskiptavinir valið sér raforkusala, án tillits til búsetu. Samkeppni var innleidd í raforkuframleiðslu og raforkusölu en flutningur raforku frá virkjun til neytenda er eftir sem áður háður einkaleyfi.
Orkusalan býður fyrirtækjum og stofnunum samkeppnishæft verð og þjónustu sem miðar að því að mæta þörfum markaðarins fyrir einföld og hagkvæm innkaup á raforku. Viðskiptavinir hafa aðgang að þjónustuvef sem heldur utan um öll viðskipti við Orkusöluna. Þar er meðal annars hægt að nálgast upplýsingar um reikninga, yfirlit yfir flutningstilkynningar, notkunarstaði, samninga og annað.
Þjónustuver Orkusölunnar er opið frá klukkan 8-16 alla virka daga. Í því er fyrirtækjum og stofnunum veitt öll þjónusta sem unnt er að veita í gegnum síma. Upplýsingar og ráðgjöf fást um þjónustu fyrirtækisins, tekið er við álestrartölum og notendabreytingum, veitt er ráðgjöf um tæknileg atriði og raforkureikninga. Í þjónustuveri Orkusölunnar starfar reyndur hópur starfsmanna sem hefur það að markmiði að gera raforkuviðskipti fyrirtækja og stofnana einföld, þægileg og hagkvæm.