Þjónustuver Orkusölunnar er opið frá klukkan 08-16 alla virka daga. Í þjónustuverinu er einstaklingum og fyrirtækjum veitt öll þjónusta sem unnt er að veita í gegnum síma. Upplýsingar fást um þjónustu fyrirtækisins, tekið er við álestrartölum og notendabreytingum, veitt er tæknileg ráðgjöf, ráðgjöf um raforkureikninga og önnur þjónusta er varðar raforkuviðskipti.
Í þjónustuveri Orkusölunnar starfar reyndur hópur fólks sem hefur það að markmiði að gera raforkuviðskipti heimila og fyrirtækja einföld, þægileg og hagkvæm.